Hátíðarguðsþjónusta, páskadagsmorgun 16. apríl kl. 9
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir almennan söng ásamt Sólveigu Önnu Aradóttur, organista. Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Páskaegg og veitingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.








