Helgihald í Fríkirkjunni yfir páskahátíðina.
Lestur Passíusálma, föstudagurinn langi 14. apríl kl. 13
Á föstudaginn langa, 14. apríl, verða Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Halldór Hauksson les sálmana og leikur á píanó fjórradda útsetningar eftir Johann Sebastian Bach á nokkrum af lögunum sem séra Hallgrímur samdi sálmana við. Flutningurinn hefst kl. 13 og stendur í um fimm klukkustundir.
Aðgangur er ókeypis.
Halldór helgar lesturinn minningu móður sinnar, Sveinrósar Sveinbjarnardóttur, sem lést í apríl á síðasta ári.
Kvöldtónleikar, föstudaginn langa, 14. apríl kl. 20 .
Strengjakvartett og söngvarar frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands flytja margvísleg verk til minningar um píslargöngu Jesú Krists.
Flutt verða verk úr Stabat Mater eftir Pergolesi og einnig tríó og einleiksverk eftir J.S. Bach, Telemann og Paganini og Aarvo Pärt.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hátíðarguðsþjónusta, páskadagsmorgun 16. apríl kl. 9
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir almennan söng ásamt Sólveigu Önnu Aradóttur, organista.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Páskaegg og veitingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni.
Verið öll hjartanlega velkomin.