Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni, hádegistónleikar fimmtudaginn 23. mars kl. 12
Næstkomandi fimmtudag 23. mars, verða næstsíðustu hádegistónleikar þessarar annar í tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni. Þá verða fluttir
sálmar í djassútsetningum eftir Gunnar Gunnarssonar, Sigurður Flosason, John Höybye og Lars Jansson.
Flytjendur eru Sönghópurinn við Tjörnina, Gunnar Gunnarsson píanóleikari, Örn Ýmir Arason, kontrabassi, Aron Steinn Ásbjarnarson, saxófónn og Gísli Páll Karlsson, slagverk. Gestaspilari er Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, básúnuleikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðganseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)
Sjáumst í skemmtilegu hádegi! 🙂