Á ljúfum nótum, hádegistónleikar fimmtudaginn 6. apríl kl. 12

Næstkomandi fimmtudag, 6. apríl munu hljóma þjóðlegar línur í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þetta eru jafnframt síðustu hádegistónleikar vetrarins í tónleikaröðinni Á ljúfum nótum.

Flytjendur eru Hanna Dóra Sturludóttir, mezzosópran og Snorri Sigfús Birgisson, píanóleikari.

Lögin á tónleikunum tengjast sveitinni með einum eða öðrum hætti og þau sem Snorri útsetti eru úr Dalasýslu, en þangað á Hanna ættir að rekja.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í huggulegu hádegi! 🙂