Fjölskyldustund í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 22.september kl.14
Tónlist flytja Barnakórarnir við Tjörnina undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur, Sönghópurinn við Tjörnina og Hljómsveitin Mantra undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Prestar Fríkirkjunnar leiða stundina. Kaffiveitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.








