Grasrótarstarf Fríkirkjunnar við Tjörnina byggir á lýðræði, jöfnuði, mannréttindum og umburðarlyndi.

Fjölskyldumessa sunnudaginn 13. febrúar kl.14

Fjölskyldumessa sunnudaginn 13. febrúar kl.14

Dr. Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina. Fermingarbörn lesa guðspjöll úr Biblíunni. Tónlist stjórnar Örn Arnarsson ásamt hljómsveitinni Möntru og sönghópnum við Tjörnina. Fjölskyldur fermingarbarna eru hvattar til að mæta. Allir hjartanlega velkomnir.

Lesa meira
Guðsþjónusta sunnudaginn 6. febrúar kl.14

Guðsþjónusta sunnudaginn 6. febrúar kl.14

Með hækkandi sól og janúar að baki hefjum við helgihald að nýju. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Verið öll hjartanlega velkomin.

Lesa meira
Helgihald á aðfangadag og jóladag fellur niður.

Helgihald á aðfangadag og jóladag fellur niður.

Áður auglýst helgihald Fríkirkjunnar í Reykjavík á aðfangadag og jóladag fellur niður sökum mikillar fjölgunar smita og hertra samkomutakmarkana. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og hvetjum ykkur til að horfa á jólaþátt Fríkirkjunnar á RUV kl.21.05 á aðfangadagskvöld.  …

Lesa meira
Fjölskyldumessa sunnudaginn 19. desember kl.14

Fjölskyldumessa sunnudaginn 19. desember kl.14

Fjórði sunnudagur í aðventu. Tendruð verða ljós á aðventukransi og bætist nú við ljós á englakerti. Sönghópurinn við Tjörnina og hljómsveitin Mantra leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson, prestur Fríkirkjunnar leiðir stundina. Verið öll hjartanlega velkomin.

Lesa meira