Messa sunnudagsins 14. nóvember fellur niður

Kæru vinir,
Í ljósi samkomutakmarkanna sem tóku gildi laugardaginn 13. nóvember, höfum við ákveðið að fella niður messu sunnudagsins 14. nóvember. Við vonumst til að geta tekið á móti ykkur fljótlega aftur. Þangað til, gætið að einstaklingsbundnum sóttvörnum og verið góð  hvort við annað.
Kærleikskveðja prestar og starfsfólk Fríkirkjunnar í Reykjavík.