HELGIHALD Á AÐVENTU OG JÓLUM

Sunnudagur 17. desember kl. 17
Heilunarguðsþjónusta
Í samstarfi Fríkirkjunnar í Reykjavík, Kærleiksseturs og Sálarrannsóknafélags Íslands.
Friðbjörg Óskarsdóttir heilari og fræðslumiðill leiðir kirkjugesti í heilunarhugleiðslu.
Ávarp flytur séra Hjörtur Magni Jóhannsson.
Um tónlist sjá Gunnar Gunnarsson og Sönghópurinn við Tjörnina.

Sunnudagur 17. desember kl. 20
Aðventukvöld Fríkirkjunnar

Fallegt og ljúft tónlistarkvöld.
Gyrðir Elíasson, rithöfundur og Tómas R. Einarsson tónlistarmaður lesa úr nýútgefnum bókum sínum.
Sara Gríms, Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Aðalsteinn Ásberg syngja lög úr söngvasveignum Stjörnunni í austri.
Heiða Árnadóttir, söngkona og Gunnar Gunnarsson, píanóleikari flytja lög af nýútgefinni hljómplötu sinni.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Séra Hjörtur Magni og Dr. Sigurvin Lárus prestar Fríkirkjunnar leiða stundina.

Aðfangadagur 24. desember kl. 18
Aftansöngur á aðfangadagskvöldi
Söngkonan Þóra Einarsdóttir syngur einsöng.
Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista.
Dr. Sigurvin Lárus leiðir stundina.

Aðfangadagur 24. desember kl. 20.55 á RÚV sjónvarp
Friðarstund í Fríkirkjunni
Sjónvarpsútsending á RÚV frá friðaðarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík.

Jóladagur 25.desember kl. 14
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag
Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur af sínum fjölmörgu lögum og kryddar stundina með skemmtilegum sögum.
Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni.

Gamlársdagur 31.desember kl. 16
Aftansöngur á gamlársdag
Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista leiða safnaðarsöng.
Dr. Sigurvin Lárus leiðir stundina.

Verið öll hjartanlega velkomin!