Helgileikur barnakórsins við Tjörnina sunnudaginn 10. desember kl.14

Annar sunnudagur í aðventu.
Tendruð verða ljós á aðventukransi og bætist nú við ljós á Betlehemskertið.
Barnkórinn við Tjörnina flytur árlegan helgileik undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Tónlistarflutningur á vegum hljómsveitarinnar Möntru undir stjórn Gunnars Gunnarssonar.
Að helgileiknum loknum verður haldið til safnaðarheimilis þar sem dansað verður í kringum jólatréð.
Barnakór Fríkirkjunnar flytur okkur jólalög, jólasveinninn kemur í heimsókn með glaðning handa börnunum.
Kaffi og meðlæti fyrir alla.

Verið öll hjartanlega velkomin.