Hádegistónleikar fimmtudaginn 26. maí kl.12

“Hvítuvötn” eftir Oliver Kentish
frumflutningur

Fimmtudaginn 26. maí verður frumflutt verk á hádegistónleikum í Fríkirkjunni, en það eru jafnframt síðustu tónleikar vetrarins.

Anna Jónsdóttir, sópran, Ólöf Sigurvinsdóttir, sellóleikari og Sophie Schoonjans, hörpuleikari, frumflytja “Hvítuvötn” eftir Oliver Kentish, við 5 ljóð Ingimars Erlends Sigurðssonar, fyrir selló, hörpu og sópran.

Ljóðin fjalla um lífið, sorgina, tárin, dauðann, trúna, og vatnið í sinni tærustu mynd. Áheyrendum er boðið í ljóðahljómgöngu, þar sem Oliver hefur gefið ljóðum Ingimars Erlends nýjar víddir með fögru tónmáli og formum og áferðum sem auðga ljóðin og styrkja myndmál þeirra.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í spennandi hádegi! 🙂