Tónleikar – Fjölmenningarmessa, fimmtudaginn 26. maí kl. 20

Sönghópurinn við Tjörnina – sönghópur kirkjunnar – býður til tónleika fimmtudagskvöldið 26. maí kl. 20 í Fríkirkjunni.

Flutt verða verk eftir J.S. Bach, Ariel Ramírez auk Fjölmenningarmessu eftir Yamandú Pontvik ásamt hljómsveit og barnakór kirkjunnar.
Fjölmenningarmessan er verk í 8 köflum þar sem sótt eru stef og rytmar í ólíka menningarheima og trúarbrögð.
Hljómsveitina skipa Ásgeir Ásgeirsson sem spilar á gítar, oud og tambura, Matthías Hemstock á slagverk, Sigrún Harðardóttir á fiðlu og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa.
Stjórnandi er Gunnar Gunnarsson píanóleikari og organisti kirkjunnar.
Einsöngvari verður Einar Clausen og stjórnandi barnakórs Álfheiður Björgvinsdóttir.

Aðgangur er ókeypis.