Minningarguðsþjónusta sunnudaginn 22. maí kl. 14

Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa af völdum alnæmis hér á landi.
Kveikt er á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.
Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina.
Hugleiðingu: flytur Aminata Conte frá Gíneu Conakry.
Formaður: Hiv-Ísland, Sigrún Grendal, flytur ávarp.
Ritningarlestur: verður í höndum félagsmanna.
Tónlist: Afrískur trommusláttur og Margrét J Pálmadóttir mætir með sína fögru söngfugla.
Söngkonan: Berglind Björk Jónasdóttir flytur nokkur lög.
Organisti: í athöfninni er Gunnar Gunnarsson.

Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að athöfn lokinni.

Verið öll hjartanlega velkomin.