LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 12:15
Listrænn stjórnandi er Gerrit Schuil.
Dagskrá tónleikanna er ekki auglýst fyrirfram, né flytjendur.
Flytjandi með Gerrit á tónleikum síðasta miðvikudags var bassasöngvarinn Bjarni Þór Kristinsson.
Við bjóðum öllu þvi fólki sem leið á um Fríkirkjuveginn i hádeginu á miðvikudögum, að njóta með okkur tónlistarlegrar óvissuferðar með mörgu af okkar besta listafólki.
Athugið að aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000 kr., og ekki er tekið við greiðslukortum.
Verið hjartanlega velkomin.