Ljáðu okkur eyra, hádegistónleikar, miðvikudaginn 17.október kl. 12:15

Listrænn stjórnandi er Gerrit Schuil.
Dagskrá tónleikanna er ekki auglýst fyrirfram, né flytjendur. Flytjandi með Gerrit á tónleikum síðasta miðvikudags var söngkonan Þóra Einarsdóttir.
Við bjóðum öllu þvi fólki sem leið á um Fríkirkjuveginn i hádeginu að njóta með okkur tónlistarlegrar óvissuferðar með frábæru tónlistarfólki.
Athugið að aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000 kr., og ekki er tekið við greiðslukortum.
Verið hjartanlega velkomin.