Snjór í Fríkirkjunni. Tónleikar laugardaginn 22. nóvember kl. 17
Snjór er yfirskrift tónleika sem verða í Fríkirkjunni við Tjörnina laugardaginn 22. nóvember kl. 17:00.
Þar leika norsku tónlistarmennirnir Arne Hiorth á flygilhorn og Helge Nysted á píanó ásamt Sönghópi Fríkirkjunnar og Gunnari Gunnarssyni organista.
Arne og Helge munu m.a. leika af plötunni SNØ sem út kom fyrir nokkru þar sem þeir spinna yfir þekkt jólalög.
Sönghópur Fríkirkjunnar hefur getið sér gott orð að undanförnu m.a. á plötunni MANNABÖRNUM þar sem hann syngur lög Tómasar R. Einarssonar í útsetningum Gunnars Gunnarssonar.
Aðgangseyrir 2000 kr.