Vinir í bata. Tólf spora vinna – andlegt ferðalag, þriðjudaginn 20. sept. kl. 20.00
Kynningarfundur verður haldinn í Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 20. sept. 2011, kl. 20.00-22:00.Það eru margvíslegar tilfinningar innra með okkur sem við eigum stundum erfitt með að skilja. 12 spora vinnan er traust tækifæri til að taka til í vistaverum hugans og uppskera aukin lífsgæði bæði félagslega og tilfinningalega. Vinir í bata deila með þátttakendum hvernig sporin leiddu þau til hamingjuríks lífs, vellíðunar, áhuga og árangurs í lífinu. Næstu þrír kynningafundir eru einnig opnir, hópunum verður síðan lokað á fjórða fundi þann 11. okt.
Hver fundur hefst í kirkjunni með íhugun. Síðan er farið yfir í safnaðarheimili Fríkirkjunnar að Laufásvegi 13. Mælt er með að mæta á alla opnu fundina. Komið og kynnist frábæru mannræktarstarfi.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni www.viniribata.is og bryndis@frikirkjan.is S. 860 8845. |
|
|
“Guð – gefi mér æðruleysi |
|