LJÁÐU OKKUR EYRA – Hádegistónleikar miðvikudaginn 14. september kl. 12:15
LJÁÐU OKKUR EYRA tónleikaröðin undir stjórn Gerrit Schuil er alla MIÐVIKUDAGA kl.12:15 Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur. Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.
Gestur Geritt á þessum fyrstu tónleikum í tónleikaröðinni var tenórinn Elmar Gilbertsson en nánari upplýsingar um Elmar má sjá á heimasíðu hans http://www.elmargilbertsson.com/Elmar/Home.html
ÓKEYPIS AÐGANGUR – ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR