Hátíðarguðsþjónusta, sunnudaginn 15. nóvember kl. 11 f.h.

Í tilefni 116 ára afmælis Fríkirkjunnar í Reykjavík.

–ATH BREYTTAN TÍMA Í ÞETTA EINA SINN –

Messunni er útvarpað á Rás 1

“Ef kirkjan væri kristileg”
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.

Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni.

Verið öll hjartanlega velkomin!