Jerúsalem með Hirti Magna 8 -19 apríl 2016
Hér er á ferðinni einstök sögu og menningarferð til Jerúsalem með Séra Hirti Magna Fríkirkjupresti þar sem heimsóttar verða söguslóðir Bíblíunnar bæði í Jerúsalem og Galíleu. Fetað verður í fótspor Jesú Krists og borgir eins og Nasaret, Betlehem og Jeríkó verða heimsóttar. Fræðst verður um bakgrunn og tengsl stóru eingyðistrúarbragðanna þriggja, gyðingdóms, kristni og Íslam. Og yfirstandandi deilur verða skoðaðar í því ljósi, af þekkingu og yfirvegun. Einnig verður synt í Dauðahafinu, farið um Vesturbakkann og Gólanhæðir. Dvalið verður í Jerúsalem í sex daga og fjóra daga í borginni Tíberias við Galíleuvatn til hvíldar og slökunnar í mikilli náttúrufegurð. Nánari upplýsingar og bókanir á heimsíðu Úrvals Útsýnar og hér.