“Umhverfis-hugleiðing“ Miðvikudagskvöldið 27. apríl kl. 20.00
Í samvinnu við verkefnið

Fríkirkjan við Tjörnina er græn og grasrótarvæn
Miðvikudagskvöldið 27. apríl kl. 20.00 verður efnt til samveru í Fríkirkjunni undir yfirskriftinni „Umhverfis-hugleiðing“. Þar verður kastljósinu sérstaklega beint að umhverfismálum og náttúruvernd bæði í tali og tónum. Það er gert í samvinnu við verkefnið Grænan apríl.
Jörðin er ekki einnota. Þörf er á vitundarvakningu hvað varðar ábyrgð okkar og ráðsmennsku gagnvart jörðinni og auðæfum hennar sem og gagnvart andrúmsloftinu og hafinu allt í hring.
Landsþekktir listamenn hafa þegar boðað þátttöku sína. Má þar t.d. nefna Ellen Kristjánsdóttur sem og Pál Óskar Hjálmtýsson og Móniku Abendroth hörpuleikara. Þá mun hinn ungi og efnilegi kór Fríkirkjunnar einnig syngja.
Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir mun ávarpa samkomuna.
Eins verða flutt stutt ávörp m.a. Guðrún Bergmann talskona Græns Apríls og Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur.
Fríkirkjan við Tjörnina býður alla velkomna til þátttöku í þessari ánægjulegu vitundarvakningu. Þátttaka hvers og eins skiptir máli.