VOR-OG UPPSKERUHÁTÍÐ VINA Í BATA FÖSTUDAGINN 6. MAÍ KL. 20.00
Vinir í bata í Fríkirkjunni í Reykjavík bjóða öllum til uppskeruhátíðar föstudaginn 6. maí kl. 20.00. Við munum heyra vitnisburði vina í bata, af sporagöngu þeirra, þar sem þeir deila reynslu sinni styrk og von. Mikil tónlist mun gleðja okkur og á eftir förum við upp í safnaðarheimili til að gæða okkur á ljúffengum veitingum og spjalla saman. Það er tilvalið að taka með sér gesti á uppskeruhátíðina, bjóða fjölskyldu og vinum að taka þátt í gleðinni. Hittum aðra vini í bata og gleðjumst hvert með öðru yfir betra lífi.