Skírnar- og fermingarmessa sunnudaginn 24. október kl. 14:00

Í messunni verður Guðrún Helena Guðbjörg Hörpudóttir skírð og fermd. Kór Fríkirkjunnar leiðir tónlistina við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Barnastarfið hefst sem fyrr í kirkjunni, síðan fara börnin með Margréti Lilju og Ágústu Ebbu í Safnaðarheimilið, þar verður m.a. brúðuleikur, sagðar sögur, sungið og jafnvel föndrað. Börnin fá afhenta örk sem fjallar um biblíusögu dagsins, sem að þessu sinni segir frá þegar Jesús stillti storminn. Boðskapurinn er sá að það sé gott að eiga Jesú sem vin. Hann verndar okkur þegar við erum hrædd og gefur okkur styrk.

Verið öll hjartanlega velkomin