Guðsþjónusta, skírn og barnastarf sunnudaginn 10. okt kl. 14:00

Í guðsþjónustunni verður barn borið til skírnar. Fermingarungmenni lesa ritningartexta og kór Fríkirkjunnar leiðir sönginn við undirleik Helga Reynis Jónssonar. Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin með Margréti Lilju og Ágústu Ebbu í Safnaðarheimilið, þar verður m.a. brúðuleikur, sagðar sögur, sungið og jafnvel föndrað. Börnin fá afhenda örk sem fjallar um biblíusögu dagsins, sem að þessu sinni er um lamaða manninn. Sagan fjallar um vináttu, það að vera góður vinur. Það er enginn vandi að vera vinur þegar allt gengur vel í lífinu. En hvað erum við tilbúin til að leggja á okkur fyrir vini okkar þegar illa gengur hjá þeim?