Sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni sunnudaginn 21. maí kl. 14

Sunnudaginn 21. maí verður haldin sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík í tilefni þess að 40 ár liðin frá því fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi. Minningarstundin, HIV candlelight memorial service, hefur verið haldin árlega í Fríkirkjunni í Reykjavík í hátt í 30 ár.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun þar koma fram og viðurkenna þá fordóma sem HIV jákvæðir og alnæmissjúkir mættu af hendi yfirvalda og almennings við upphaf faraldursins. Auk Katrínar taka til máls Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland, Halla Kristín Sveinsdóttir aðstandandi, Álfur Birkir Bjarnason formaður Samtakanna ´78, Svavar G. Jónsson formaður HIV Ísland og Hjörtur Magni Jóhannsson forstöðumaður Fríkirkjunnar.
Fram koma:
Hörður Torfa
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
Úlfur Viktor Björnsson
Tónlistarfólk Fríkirkjunnar undir stjórn Gunnars Gunnarssonar
Öll velkomin!