
Helgileikur barnakórsins við Tjörnina og jólaskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík sunnudaginn 15. desember kl.14
Þriðji sunnudagur í aðventu.
Tendruð verða ljós á aðventukransi og bætist nú við ljós á hirðakerti.
Barnkórinn við Tjörnina flytur árlegan helgileik undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Tónlistarflutningur á vegum hljómsveitarinnar Möntru undir stjórn Gunnars Gunnarssonar.
Að helgileik loknum verður haldið til safnaðarheimilis þar sem dansað verður í kringum jólatréð.
Barnakór Fríkirkjunnar flytur okkur jólalög, jólasveinninn kemur í heimsókn með glaðning handa börnunum.
Kaffi og meðlæti fyrir alla.
Hlökkum til að sjá ykkur!