Helgihald um jól og áramót 2015

24. des. fim. kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.
Söngkonan Nathalía Druzin Halldórsdóttir syngur einsöng.
Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni þjónar fyrir altari.
24. des. fim. kl. 23:30 Miðnætursamvera á jólanótt.
Páll Óskar og Monika Abendroth ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!
25. des. fös. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni.
31. des. fim. kl. 17:00 Aftansöngur á gamlársdag.
Ræðumaður: Stefán Jón Hafstein.
Fram koma: Kristjana Stefánsdóttir, söngkona, Aron Steinn Ásbjarnarson, saxófónn, Örn Ýmir Arason, kontrabassi, Gísli Páll Karlsson, slagverk. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Sr. Hjörtur Magni þjónar fyrir altari.