Stefán Jón Hafstein í Fríkirkjunni á gamlársdag kl. 17

Áramótaguðsþjónusta, gamlársdag 31. desember kl. 17

Stefán Jón Hafstein, starfsmaður Þróunarsamvinnustofu Íslands flytur gestum ræðu og spyr í ræðu sinni “Hvað getum við gert til að bjarga heiminum”?
Jasssöngkonan Kristjana Stefánsdóttir syngur fyrir gesti.
Undirleik annast Aron Steinn Ásbjarnarson á saxófón, Örn Ýmir Arason á kontrabassa, Gísli Páll Karlsson á slagverk ásamt Gunnari Gunnarssyni á píanó.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina.

Verið öll hjartanlega velkomin.