Helgihald á aðventu og jólum.
| 11. | des. | mið. | kl. | 20:00 | Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er aðalræðumaður kvöldsins og les úr bók sinni Um tímann og vatnið. Fram koma: Sönghópurinn við Tjörnina, hljómsveitin Mantra ásamt Gunnari Gunnarssyni og barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Sr.Hjörtur Magni leiðir stundina. |
| 15. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík. Stundin hefst með samveru í kirkjunni. Síðan verður haldið upp í safnaðarheimili þar sem verður sungið og dansað í kringum jólatré með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla. |
| 22. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. |
| 24. | des. | þri. | kl. | 18:00 | Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Þóra Einarsdóttir sópran syngur einsöng. Sönghópurinn við Tjörnina ásamt strengjakvartett kirkjunnar syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. |
| 25. | des. | mið. | kl. | 14:00 | Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. |
| 31. | des. | þri. | kl. | 16:00 | Aftansöngur á gamlársdag. Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina |