Guðsþjónusta sunnudaginn 13. febrúar kl. 14:00
Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari og prédikar; hvað felur það í sér að fylgja Kristi?
Sérstaklega eru fermingarbörn og fjölskyldur þeirra hvött til að mæta og taka þátt!
Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller tónlistarstjórar
ásamt kór Fríkirkjunnar.
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá – föndur, leiki og sögu.
Í Biblíusögu dagsins er sagt frá litlum dreng sem gaf Jesú nestið sitt. Jesús margfaldaði gjöfina sem varð 5000 manns til blessunar. Án efa má yfirfæra þetta á margt í lífinu.
Það litla sem við getum lagt af mörkum til náungans margfaldar Guð og lætur verða til blessunar fyrir marga.
VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN