Guðsþjónusta sunnudaginn 6. febrúar kl. 14:00

Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller tónlistarstjórar ásamt kór Fríkirkjunnar.
Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari.
Í stað hefðbundinnar prédikunar munu Anna Sigga og Sr. Bryndís flytja samtalsprédikun, sem fjallar um vináttuna, vinkonur og trúna.
 
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá – föndur og leiki.
Börnin fá afhenta dæmisögu dagsins sem verður sagan um Mörtu og Maríu. Hún fjallar um hvernig við forgangsröðum tíma okkar og að gleyma ekki Guði í erli dagsins.
Söguna er að finna í Lúk. 10:38-42  

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!