Fríkirkjan og Hinsegin dagar

Laugardaginn 6. ágúst fer fram hin árlega Gleðiganga Hinsegin daga. Gangan hefst kl. 14 við Vatnsmýrarveg, austan BSÍ. Að þessu sinni mun verða gengið eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og fram hjá Arnarhóli. Skemmtidagskrá hefst síðan við Arnarhól kl. 15:30.
Á meðan á göngunni stendur mun Fríkirkjan standa opin gestum og gangandi.