Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 18. október kl. 14

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur, leiðir stundina.
Fermingarbörn taka þátt.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.

Aðstandendur fermingarbarna eru hvattir til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni.
Að guðsþjónustu lokinni höldum við í safnaðarheimilið og njótum veitinga.

Verið öll hjartanlega velkomin.