Ást í tónaflóði, hádegistónleikar fimmtudaginn 22. október kl. 12

Fimmtudaginn 22. október munu þær Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir, sópran og Hrönn Þráinsdóttir,
píanóleikari flytja Íslensk sönglög, ljóð og léttar aríur í hádeginu í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.

Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í rómantísku hádegi!