
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 17. febrúar kl. 14
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur leiðir stundina.
Fermingarbörn taka þátt.
Barnakór Fríkirkjunnar, hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Söngvaskáldið Svavar Knútur, spilar og syngur fyrir gesti.
Við hvetjum fjölskyldur fermingarbarna til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni.
Kaffiveitingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni.
Verið öll hjartanlega velkomin.