Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 15. febrúar kl. 14.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur og Erla Björk Jónsdóttir, guðfræðingur, leiða stundina.
Fermingarbörn taka þátt.
Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.

Aðstandendur fermingarbarna eru hvattir til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni.

Verið öll hjartanlega velkomin.