DAGSKRÁ JÚLÍ 2011
Engar guðsþjónustur eru fyrirhugaðar í júlí mánuði,
næsta guðsþjónusta verður sunnudaginn
14. ágúst kl. 14.
3. júlí Sun. kl.14:00 Fermingarmessa
Séra Bryndís Valbjarnardóttir
þjónar fyrir altari.
Hugljúf tónlist í messunni.
5. júlí þri. kl. 20:00 Tónleikar Mógil
Útgáfutónleikar Mógil Ró.
17. júlí sun. kl. 20:00 Ljóðatónleikar á sumarkvöldi
í Fríkirkjunni, Reykjavík.
Ástmar Ólafsson, barítón og
Alan Jacques, píanóleikari.
Ástmar og Alan Jacques koma fram í fyrsta sinn í Reykjavík með dagsskrá,
sem ætti að höfða til unnenda ljóðasöngs.
Á dagsskrá verða 3 ljóðaflokkar, Liederkreis Opus 39 eftir Robert Schumann,
The Lady in White, eftir John Speight, sem alkunnur er Íslendingum eftir
margra ára búsetu og tónlistarstörf á Íslandi og Songs of Travel, eftir hið
virta Breska tónskáld, Ralph Vaughan Williams.
Ástmar og Alan hafa starfað saman í áraraðir og haldið fjölda tónleika
í Skotlandi, þar sem þeir eru báðir búsettir.