AÐVENTUKVÖLD Í FRÍKIRKJUNNI Í REYKJAVÍK, sunnudaginn 4. desember kl. 20
Hugljúf og skemmtileg jólastemmning.
Prestarnir Séra Hjörtur Magni og Séra Bryndís stýra dagskránni og flytja ritningalestur.
Ræðumaður kvöldsins er Þráinn Bertelsson, rithöfundur og þingmaður.
Tónlistarflutningur í höndum kórs Fríkirkjunnar í Reykjavík undir styrkri stjórn Önnu Sigríðar Helgadóttur við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Einsöngur og píanóflutningur í höndum kórfélaga.
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 14.00
Annar sunnudagur í aðventu. Kveikt verður á öðru kerti á aðventukransi, Betlehemskertinu.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari og flytur hugleiðingar út frá söng og ritningartextum í tengslum við jólaundirbúninginn.
Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur organista.
Rósmarý og Margrét Rós fara með börnin í Safnaðarheimilið og segja þeim jólasögu.
Verið öll hjartanlega velkomin.