Allra heilagra messa, sunnudaginn 6. nóvember kl. 14 og Batamessa kl. 17

Allra heilagra messa, sunnudaginn 6. nóvember kl. 14

Séra Hjörtur Magni þjónar fyrir altari.

Messan er sérstaklega helguð minningu þeirra sem látist hafa á undangengnu ári.

Gengið verður til altaris.

Jafnframt verður stund fyrir börnin á sama tíma, þar sem leitast verður við að svara spurningum þeirra um eilífðarmálin.

Anna Sigga og Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða tónlistina ásamt
Aðalheiði Þorsteinsdóttur, orgelleikara.

Tónlistarfólkið mun hefja flutning tónlistar hálftíma fyrir upphaf athafnar.

Síðdegis á sunnudaginn mun síðan fara fram Batamessa í Fríkirkjunni þar sem séra Bryndís Valbjarnardóttir mun þjóna fyrir altari.

Batamessan hefst kl. 17

Verið öll hjartanlega velkomin.