Þjóðlagamessa sunnudaginn 31. október kl. 14:00
Flutt verður þjóðlagamessa í anda Per Harling. Kór Kvennaskólans, undir stjórn Gunnars Ben, leiðir tónlistina ásamt Önnu Siggu tónlistarstjóra Fríkirkjunnar og Aðalheiði Þorsteinsdóttur organista.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin með Margréti Lilju og Ágústu Ebbu í Safnaðarheimilið, þar verður m.a. brúðuleikur, sagðar sögur, sungið og jafnvel föndrað.
Börnin fá afhenda örk sem fjallar um biblíusögu dagsins, sem að þessu sinni fjallar um týnda soninn.
Það kemur fyrir að við gerum eitthvað sem við sjáum svo eftir, iðrumst sáran. Þá er svo gott að geta leitað til Guðs og beðið fyrirgefningar. Guð er eins og gott og skilningsríkt foreldri, sem fyrirgefur og umfaðmar okkur. Guð gleðst þegar við viljum bæta fyrir gjörðir okkar og verða betri manneskjur hvort við annað.
VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!