Barna- og fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 17. október kl. 14:00
Barna- og fjölskyldusamvera sunnudaginn 17. október kl.14.00.
Stoppleikhópurinn sýnir barnaleikritið Ósýnilegi vinurinn.
Í leikritinu er brugðið upp skemmtilegum frásögnum úr sköpunarsögu Biblíunnar og samskiptum kynjanna.
Leikarar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir
Höfundur tónlistar: Valgeir Skagfjörð
Leikgerð: Eggert Kaaber
Leikstjórn: Stoppleikhópurinn
Sr. Bryndís Valbjarnardóttir leiðir samveruna ásamt Margréti Lilju, Ágústu Ebbu og kór Fríkirkjunnar við undirleik Finns Karlssonar.
Verið öll hjartanlega velkomin til skemmtilegrar samveru.