Vinir í bata. 12 spora vinna. Andlegt ferðalag

Kynningarfundur verður haldinn í kirkjunni þriðjudaginn 21. september nk. Kl. 20:00-22:00
Það eru margvíslegar tilfinningar innra með okkur sem við eigum stundum erfitt með að skilja.
12 spora vinnan er traust tækifæri til að taka til í vistaverum hugans og uppskera aukin lífsgæði bæði félagslega og tilfinningalega.
Vinir í bata deila með þátttakendum hvernig sporin leiddu þau til hamingjuríks lífs, vellíðunar, áhuga og árangurs í lífinu.
Næstu þrír fundir verða einnig opnir, hópunum verður síðan lokað á fjórða fundi þann 12. okt.
Fundirnir verða á þriðjudögum og  hefjast í kirkjunni, síðan er farið yfir í safnaðarheimilið að Laufásvegi 13.
Komið og kynnist frábæru mannræktarstarfi. Nánari upplýsingar: www.viniribata.is
Guð – gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.”

Reinhold Niebuhr Carnegie