Haustlitaferð safnaðarfólks Fríkirkjunnar við Tjörnina 2. október 2011.
Sunnudaginn 2. október 2011 verður haustferð um Suðvesturland. Lagt er af stað frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 10.00 árdegis. Ekið er til Þingvalla og notið fegurðar haustlitanna. Þaðan liggur leiðin um nýja veginn á Lyngdalsheiði, um Laugarvatn og að Sólheimum í Grímsnesi. Á Sólheimum verður borinn fram léttur hádegisverður og síðan gengið til kirkju. Kór Fríkirkjunnar undir stjórn Önnu Siggu og Aðalheiðar sjá um tónlist og prestar Fríkirkjunnar þjóna fyrir altari og prédika. Eftir messu höldum við niður Skeiðin og Tungurnar inn á þjóðveg og heimsækjum Vatnsholt í Flóahreppi, sem er rómaður staður fyrir margt s.s. útsýni, dýrahald og frábæra aðstöðu. Í Vatnsholti býr Fríkirkjufólk, þau Margrét og Jóhann, þar verður boðið upp á eftirmiðdagskaffi. Eftir ánægjulegan dag, njótum við heimferðarinnar.