Dagskrá um jól og aðventu

15. des. fim. kl. 20:30 Tónleikar, Ester Jökulsdóttir syngur lög Mahalia Jackson.
16. des. fös. kl. 20:00 Tónleikar, Herman Van Veen.
17.  des.    lau. kl. 21:00 Tónleikar. Anna Sigga Helgadóttir, Hilmar Örn Agnarsson, Björg Þórhallsdóttir og fl.
18. des. sun. kl. 14:00 Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hefst með jólastund í kirkjunni. Barn borið til skírnar. Síðan haldið upp í Safnaðarheimili og sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla.
18. des. sun. kl. 17:00 Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir hugleiðslu og heilun, ásamt sr. Bryndísi og kór Fríkirkjunnar.
18. des. sun. kl. 20:00 Tónleikar. Bryndís Jakobsdóttir ásamt Song For Wendy og Ragnheiði Gröndal.
21. des. mið. kl. 20:30 Tónleikar, Á dimmri nóttu; Anna Sigga Helgadóttir söngkona og Aðalheiður Þorsteinsdóttir Organisti, báðar tónlistarstjórar Fríkirkjunnar.
22. des. fim. kl. 20:00 Tónleikar, Sturla Kaspersen.
23. des. fös. kl. 22:00 Jólatónleikar, Árstíðirnar og Lay Low
24. des. lau. kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskveldi. Ungur kór Fríkirkjunnar syngur jólin inn og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Önnu Siggu og Aðalheiðar. sr. Bryndís Valbjarnardóttir predikar og þjónar fyrir altari.
24. des. lau. kl. 23:30 Miðnætursamvera á jólanótt. Páll Óskar syngur – Monika Abendroth leikur á hörpu ásamt strengjasveit. Sr.Hjörtur Magni Jóhannsson talar til viðstaddra. Anna Sigga syngur ásamt Fríkirkjukórnum. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!
25. des. sun. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. sr. Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari. Ungur kór Fríkirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Önnu Siggu og Aðalheiðar.
31. des. lau. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á dvalar og hjúkrunarheimilinu Grund. Kór Fríkirkjunnar ásamt Sr. Bryndísi Valbjarnardóttur.
31. des. lau. kl. 18:00 Aftansöngur á gamlárskvöldi. Kór Fríkirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Önnu Siggu og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. sr. Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari og predikar.