Guðsþjónusta og barnastarf, sunnudaginn 13. nóvember kl. 14
Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari.
Kristján Þór sverrisson, trúboði frá Kristniboðssambandinu, predikar.
Kristján starfaði, ásamt konu sinni og börnum, sem kristniboði í Eþíópíu í 5. ár
Winnie Brückner Jazz söngkona frá Berlín syngur í messunni.
Anna Sigga og Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða tónlistina ásamt
Aðalheiði Þorsteinsdóttur, orgelleikara.
Fermingarfræðsla fyrir fermingarbörn í safnaðarheimili Fríkirkjunnar frá kl. 11:30 – 13:30
Veitingar í safnaðarheimili eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.
Winnie Brückner er Jazz söngkona frá Berlín sem hér er stödd vegna samstarfs hennar við myndlistarkonuna Kristínu Gunnlaugsdóttur. Sem stofnandi kvartettsins “ninwie” hefur hún unnið til margra viðurkenninga og komið fram víðsvegar í Evrópu. Sönghópurinn flytur a cappella tónlist en Winnie heldur einnig ein tónleika og hefur sérhæft sig í að nota rödd sína í bland við elektróniska tækni, loop, þar sem hún býr til eigin margradda flutning á tæran og einstæðan hátt.
Tónleikar hennar í Fríkirkjunni eru á sunnudaginn 13.nóv. kl. 17:00. Aðgangseyrir 1.500 kr.