Fjölskylduguðsþjónusta, sunnudaginn 27. nóvember kl. 14

Fyrsti sunnudagur í aðventu.
Fyrirtaks fjölskyldustund í Fríkirkjunni.
Fyrsta ljós á aðventukransi, Spádómskerti, tendrað.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur predikar og leiðir stundina.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.

Tilvalið fyrir fjölskyldur að mæta í miðbæinn í messu og gefa svo fuglunum á Tjörninni brauð á eftir.

Verið öll hjartanlega velkomin!