Á ljúfum nótum, hádegistónleikar fimmtudaginn 24. nóvember kl.12
Hljómsveiting Andakt flytur þjóðlög og sveitatónlist í bland í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Tónleikarnir verða næstkomandi fimmtudag, 24. nóvember, hefjast kl. 12:00 og taka um hálfa klukkustund.
Flytjendur eru Ágústa Sigrún Ágústsdótir, söngur, Haraldur V. Sveinbjörnsson, söngur, gítar, píanó og Sváfnir Sigurðarson, söngur, gítar.
Þess má geta að tónleikarnir eru næstsíðustu tónleikar raðarinnar þetta árið.
Sjáumst í skemmtilegu hádegi! 🙂