Guðsþjónusta sunnudaginn 6.mars kl.14

Þennan dag fyrir 110 árum var kvenfélag Fríkirkjunnar stofnað.

Af því tilefni fer fram í guðsþjónustunni móttaka á nýjum altarisdúk sem kvenfélagið gefur kirkjunni.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Að guðsþjónustu lokinni verður haldið í safnaðarheimilið þar sem gestum verður boðið upp á veitingar.

Verið öll hjartanlega velkomin.