Hádegistónleikar í Fríkirkjunni, fimmtudaginn 3. mars kl.12

Fiðlan og orgelið, þýðir tónar frá Akranesi er yfirskrift tónleika þeirra Kristínar Sigurjónsdóttur fiðluleikara og Sveins Arnars Sæmundsson orgelleikara. Þau hafa starfað lengi saman þó ekki hafi farið mikið fyrir opinberum tónleikum.
Efnisskráin er fjölbreytt þar sem m.a. má heyra tónlist frá seinni hluta 18. aldar, þjóðlagatónlist, söngleikatónlist og meira að segja eiga félagarnir í Coldplay eitt lag.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.

Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í skemmtilegu hádegi!