Djassmessa að kvöldi, sunnudaginn 8. febrúar kl. 20

Umfjöllunarefni  sr. Hjartar Magna Jóhannssonar sem leiðir stundina.

Búdda og Jesú, sama kenning.

Fjölmargar hliðstæður er að finna í boðskap Búdda og Jesú.
Kjarni boðunarinnar virðist sá sami þó þeir séu höfundar tveggja annars ólíkra trúarbragða. Það sem er sameiginlegt með andlegum boðskap Jesú og Búdda eykur á trúverðugleika þeirra beggja og útvíkkar okkar eigin andlegu sýn.

Kvöldmessur Fríkirkjunnar eru með léttu yfirbragði þar sem tónlistin fær að leika stórt hlutverk.

Djasstríó, skipað þeim Tómasi R. Einarsssyni, kontrabassaleikara, Snorra Sigurðarsyni, trompetleikara og Gunnari Gunnarssyni, píanóleikara láta tónlistina að óma.
Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir sönginn.

Verið öll hjartanlega velkomin.

Athugið:
Engin guðsþjónusta verður kl. 14 þennan dag.