Guðsþjónusta sunnudaginn 27. febrúar kl. 14:00
Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari. Umfjöllunarefni dagsins verður:
“Frelsum Biblíuna úr fjötrum bókstafstrúarmanna”.
Fermingarbörn lesa úr ritningunni og eru þau og fjölskyldur þeirra hvött til að mæta í guðsþjónustuna.
Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller tónlistarstjórar ásamt kór Fríkirkjunnar.
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá – föndur, leiki og sögu.
Biblíusaga dagsins er sagan um Faríseann og tollheimtumanninn.
Auðmýkt, en ekki hroki, er leiðin að gæðum lífsins.
Verið öll hjartanlega velkomin!